Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir vitnum og/eða aðilum sem kunna að hafa einhverja vitneskju um líkamsárás sem átti sér stað framan við sviðið á hátíðarsvæði Kótilettunnar þann 11. júlí síðastliðinn. Árásin átti sér stað milli 02:23 og 02:26.
Þessu er greint frá á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.