Fulltrúar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) eru á leið til landsins til að undirbúa kosningaeftirlit vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn frá fréttastofu segir að íslensk stjórnvöld hafi boðið lýðræðis- og mannréttindastofnun ÖSE (ODIHR) að sinna kosningaeftirliti vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Fulltrúar ODIHR séu á leið til landsins í vikunni til að kynna sér aðstæður og funda með viðeigandi stofnunum.
„Þótt ekki hvíli skylda á aðildarríki ÖSE að bjóða ODIHR að sinna kosningaeftirliti vegna þjóðaratkvæðagreiðslna hefur stofnunin sinnt slíkum verkefnum í gegnum tíðina, en hún sinnir jafnan eftirliti við kosningu þjóðhöfðingja eða við þingkosningar,“ segir í skriflegu svari ráðuneytisins.
„Boð íslenskra stjórnvalda til ODHIR er til marks um stuðning Íslands við starfsemi stofnunarinnar og kosningaeftirlit hennar.“