Forseti ASÍ segist orðlaus vegna ummæla varaseðlabankastjóra peningastefnu um að bankinn hafi skapað slaka í efnahagslífinu með tilheyrandi atvinnuleysi til að tryggja að kjarasamningar héldu.
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sagði í Spursmálum Morgunblaðsins að Seðlabankinn hefði séð fyrir fyrr á árinu að ólíklegt væri að hægt væri að draga nógu mikið úr verðbólgu til þess að verðbólgumarkmið kjarasamninga héldu.
Við getum kannski ekki minnkað verðbólgu en við getum búið til þær efnahagsaðstæður þar sem ekki verður áhugi fyrir að segja þeim upp, það er að segja að búa til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið það nógu mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp þessum samningum.
Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ segist orðlaus yfir ummælunum.
Það er mjög óábyrgt af varaseðlabankastjóra að lýsa því yfir að þau séu að búa til atvinnuleysi til að þvinga verkalýðshreyfinguna til að taka ákvarðanir eins og þeim líkar. Það er alveg með ólíkindum að maður í þessari stöðu skuli koma með svona yfirlýsingu.
Hann segir ummælin rýra traust ASÍ til Seðlabankans. ASÍ þurfi að endurskoða stefnu sína gagnvart Seðlabankanum vegna þeirra.
„Ég á varla orð yfir þessu.“