Í lok desember árið 2023 voru 28.503 stöðugildi hjá hinu opinbera. Tveimur árum síðar voru þau orðin 29.139. Það er fjölgun um 636 störf, eða ríflega 2% á landsvísu. Skagfirðingar og Húsvíkingar hafa hins vegar ekki orðið varir við þessa fjölgun opinberra starfa. Í Norðurþingi hefur störfum fækkað því sem nemur 24 stöðugildum eða um 10% á tveimur árum.
„Ef við tökum bara núna 2024 og 2025 þá fjölgar opinberum störfum í öllum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra nema í Norðurþingi og Langanesbyggð. Svo er hægt að taka þetta lengra bara í byggðastefnu og hvernig hún er í verki,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar í Norðurþingi og vísar til þess að það fækkaði um eitt starf í Langanesbyggð á síðasta ári. Þá hefur opinberum störfum í Skagafirði fækkað um 10 á síðustu fjórum árum, eða um 3%.
Vilja starfsstöð Stofnun atvinnuveganna á Húsavík
Sveitarstjórnin í Norðurþingi vakti athygli atvinnuvegaráðherra á að ný Stofnun atvinnuveganna, sem er áætlað að taki til starfa í janúar, gæti átt starfsstöð á Húsavík.
„Í rauninni snýr þetta að því að fá starfsstöð. Við erum bara núna, frá því fyrsta desember í fyrra og það sem af er ári hefur fækkað um rúmlega 100 manns í sveitarfélaginu. Við erum sömuleiðis aðeins að finna fyrir því í ferðaþjónustunni samdrætti vegna gjaldsins á skemmtiferðaskipin,“ segir Helena.
Þá lýsti sveitarstjóri Norðurþings því í yfir í viðtali við RÚV í síðustu viku að þeir gætu vel tekið á móti Tækniskólanum til Húsavíkur og gætu boðið þeim lóð á frábærum kjörum.