OnlyFans-stjarnan LuLu LoveBottom, sem hét réttu nafni Lucas Drake, er látinn 31 árs að aldri. Frá þessu greinir People. Klámmyndaleikarinn var með ríflega 30 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum þar sem hann birti kynningarefni fyrir OnlyFans-síðu sína.Ferill Drake í klámi hófst fyrir um það bil fimm árum þegar Drake, sem hafði stundað bandarískan fótbolta í háskóla, mætti á ball og uppgötvaði ást sína á burlesque-dansi. Fannst honum dansinn veita sér frelsi til að kafa ofan í kvenlegri hliðar sínar.
OnlyFans-stjarnan LuLu LoveBottom er látinn - „Hef verið særður í síðasta sinn“