Hráolíuverð hækkaði á mörkuðum eftir að í ljós kom að ólíklegt sé að Donald Trump Bandaríkjaforseti samþykki tillögu Írana um leiðir til opna fyrir umferð um Hormússund.
Stjórnvöld í Katar vara við að átökin standi í stað og ekkert mjakist í samkomulagsátt. Tunnan af Brent-Norðursjávarolíu til afhendingar í júní hækkaði um 2,8 af hundraði og fór yfir 111 bandaríkjadali. West Texas Intermediate hækkaði um 3,7 prósent tunnan, en er enn rétt undir hundrað dölum.