Ökutæki óökufært eftir slys í Grafarvogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast frá því í gærkvöldi og fram á nótt, samkvæmt dagbók lögreglu. Meðal verkefna voru grunur um akstur undir áhrifum fíkniefna, innbrot, eldsútköll og umferðarslys.
Ökumaður bifreiðar var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann er jafnframt grunaður um að hafa ekið sviptur ökuréttindum. Var hann færður á lögreglustöð og málið afgreitt samkvæmt hefðbundnu ferli.
Þá var tilkynnt um innbrot á veitingastað í Reykjavík. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að hóteli vegna tilkynningar um eld. Í ljós kom að reykur barst frá bakaraofni og sá slökkviliðið um að reykræsta húsnæðið.
Einnig var tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Þar reyndist íbúi vera að grilla og því ekki um eld í húsinu að ræða.
Tvö umferðarslys voru skráð. Í Hafnarfirði var rafmagnshlaupahjóli ekið á bifreið en engin slys urðu á fólki. Þá varð umferðarslys í Grafarvogi í Reykjavík. Enginn slasaðist en eitt ökutæki var óökufært eftir slysið.
Lögregla hafði jafnframt afskipti af nokkrum ökumönnum vegna ýmissa umferðarlagabrota og voru þeir sektaðir.