Michael, nýrrar leikinnar kvikmyndar um stórstjörnuna Michael Jackson, hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu. Hún fjallar um þann tíma þegar Jackson, sem lést árið 2009, varð einn af frægustu popptónlistarmönnum sögunnar eftir að hafa verið barnastjarna.
Evrópufrumsýningin var í Berlín 10. apríl en forsýning í Bandaríkjunum var í Los Angeles á mánudag með þeim glæsileika sem einkennir slíkar forsýningar þar í landi.
Þessar frumsýningar eru ári seinna en upphaflega var gert ráð fyrir. Graham King framleiðir myndina en hann framleiddi einnig myndina Bohemian Rhapsody sem fjallaði um hljómsveitina Queen.
Jaafar Jackson, bróðursonur Michael, leikur titilhlutverkið. Á sýninguna mættu sum af systkinum Michaels, meðal annars bræðurnir Marlon og Jackie sem voru með honum í Jackson 5, og systirin La Toya. Gleðin var mikil og létu systkinin meðal annars hafa það eftir sér að myndin veitti vonandi innsýn í líf og feril Michaels.
Myndin umdeild í fjölskyldunni
Þessi gleði er í nokkurri andstöðu við þær deilur sem hafa staðið um þessa mynd. Fyrir frumsýningu voru strax komnar ásakanir um að með myndinni væri verið að fegra ímynd manns sem ítrekað var sakaður um kynferðisbrot. Meðal háværustu gagnrýnenda er dóttir hans, Paris, en hún var einn þeirra fjölskyldumeðlima sem komu ekkert nálægt myndinni. „Stór hluti myndarinnar höfðar til mjög ákveðins hluta aðdáendahóps pabba míns sem lifir enn í fantasíunni. Þeir verða ánægðir með það,“ sagði hún á Instagram-síðu sinni. „Í sögunni er mikil ónákvæmni og mikið af hreinum lygum.“
Upphaflega fjallaði hluti myndarinnar um þessar ásakanir og byggðist hann á frásögn eins þeirra sem sakaði Michael um brot gegn sér. Það varð að klippa þann hluta út eftir að lögmenn dánarbúsins bentu á dómsátt sem bannaði viðkomandi að deila frásögn sinni. Dánarbúið veitti töluverðu fjármagni í gerð myndarinnar.
Ef marka má skrif gagnrýnenda hefur þetta dregið úr gæðum myndarinnar. Hún fær víðast hvar slæma dóma, og oftast er talað um að hún risti grunnt og að verið sé að hvítþvo persónu hans.
Empire gefur myndinni tvær stjörnur af fimm mögulegum og segir að myndin sé ekkert annað en peningavél.
„Myndin er í glymskrattaham, þægileg hyllingaratriði án listræns gildis og ekkert annað að segja en: Jú, þetta voru flott lög, er það ekki?“
Peter Bradshaw gagnrýnandi The Guardian gefur myndinni sömu einkunn, en er heldur harðorðari.
„[Myndin er] með hverri einustu tónlistarmyndklisju sem fyrirfinnst, næstum þöglum aukaleikurum og Michael sem býður einungis brosmilt látleysi. Þessi mynd ristir óheyrilega grunnt.“
Og Nicolas Barber gagnrýnandi menningardeildar BBC skefur heldur ekki af hlutunum.
„Létt og varla sjónvarpshæf mynd að degi til.“
Það helsta sem gagnrýnendur telja jákvætt við myndina er frammistaða Jaafars Jackson í hlutverki föðurbróður síns. Hann þykir mjög líkur frænda sínum og selji áhorfandanum hlutverkið, bæði með leik- og danshæfileikum.
Þrátt fyrir þetta telja sérfræðingar allar líkur á að myndin skili miklum tekjum og borgi sig á endanum upp.