Bandaríski tæknifrumkvöðullinn og milljónamæringurinn Adam Robinson var meðal þeirra níu sem létust þegar Learjet-einkaþota fórst nærri Greenacres í Flórída á sunnudag. Sambýliskona hans, tvö ung börn þeirra og barnfóstra fjölskyldunnar voru einnig um borð í vélinni.Robinson var forstjóri hugbúnaðarfyrirtækjanna Retention.com og RB2B. Vélin var á leið til Bahamaeyja þegar slysið varð.Aðstandendur farþeganna hafa nú greint frá því hverjir létust og sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeirra er minnst.
Nú er ljóst hverjir fórust í flugslysinu – Börnin aðeins tveggja og fjögurra ára