Yfirvöld í Sri Lanka hafa skorið upp herör gegn moskítóflugum sem bera með sér beinbrunasótt (e. Dengue fever). Til þess hafa þau kallað til herinn sem notar dróna til að finna vatnspolla sem safnast hafa uppi á þökum bygginga og aðra æxlunarstaði moskítóflugna. Þá hafa lögreglumenn farið milli heimila í leit að stöðum þar sem flugurnar gætu fjölgað sér. Um 11 þúsund æxlunarstaðir hafa verið fjarlægðir í mánuðinum.
Veiran sem veldur sjúkdómnum hefur dregið 56 manns til dauða í Sri Lanka og sýkt 77 þúsund í viðbót. Meira en fjórðungur tilfella hafa greinst í júlí. Faraldurinn er sá versti í næstum áratug, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins, BBC.
Heilbrigðisyfirvöld á Srí Lanka telja að fjölgun tilfella megi rekja til hvirfilbyls sem fór yfir eyjuna í desember. Hvirfilbylurinn hafi dreift braki sem síðan hafi orðið að nýjum æxlunarstöðum moskítóflugna.
Flest tilfellin í Sri Lanka eru í þéttbýli, til dæmis í höfuðborginni Colombo. Rúmum hefur verið fjölgað á spítölum og heilbrigðisstarfsfólk beðið um að vinna lengri vaktir til að takast á við faraldurinn.
Yfirvöld hafa velt fyrir sér möguleikanum á að þróa bóluefni. Sérfræðingar segja það erfitt því framleiða þyrfti bóluefni fyrir hvert af fjórum afbrigðum veirunnar.
Tilfellum fjölgar á heimsvísu
Flest tilfelli brunasóttar greinast í hitabeltisloftslagi, þar sem moskítóflugur þrífast best, til dæmis í Suður- og Suðaustur-Asíu, Suður-Ameríku og í Karíbahafi.
Með hækkandi hitastigi á heimsvísu hafa moskítóflugur fært sig á ný mið, meðal annars inn í Evrópu og Miðjarðarhafið. Samkvæmt Alþjóða heilbrigðisstofnuninni, WHO, hefur tilfellum fjölgað úr 500 þúsund á heimsvísu árið 2000 upp í 14,4 milljónir árið 2024. Talið er að nærri helmingur jarðarbúa eigi á hættu að smitast.