Niðurstöður PISA 2025 verða kynntar á blaðamannafundi klukkan 11 í Safnahúsinu við Hverfisgötu á morgun.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Linda Heiðarsdóttir, skrifstofustjóri skólamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu, ávarpa fundinn og svara spurningum.
Alls tók 91 þjóð þátt í könnuninni sem var lögð fyrir vorið 2025, þar af 38 aðildarríki OECD. Á Íslandi tóku tæplega fjögur þúsund nemendur þátt en heildarþátttökuhlutfallið var 83%.
Síðustu niðurstöður bárust í desember 2023, þá úr PISA-könnuninni sem var lögð fyrir árið 2022.
Þær sýndu að færni íslenskra grunnskólabarna hefði hrakað hratt síðustu ár, en hún mældist undir meðaltali OECD-ríkjanna og Norðurlandanna í öllum fögum.