Fyrirtaka fór fram í máli manns sem ákærður er fyrir manndráp í heimahúsi á Kársnesi í nóvember á síðasta ári.
Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi mannsins, segir að lögð hafi verið fram gögn frá tveimur réttarlæknum frá Svíþjóð. Þeir lögðu mat á mögulega dánarorsök hins látna. Töluvert er síðan ákæra var gefin út í málinu og hafði verið beðið eftir niðurstöðunum áður en aðalmeðferð gat hafist.
Maðurinn sem er ákærður er af grískum uppruna og á þrítugsaldri en hinn látni er Portúgali sem var um fertugt.
Ákærða er gert að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Lögreglu barst tilkynning í nóvember á síðasta ári um meðvitundarlausan mann í íbúð á Kársnesi. Maðurinn var látinn þegar lögregla kom á vettvang.
Hann var með fjölda stunguáverka og lögreglan virtist í fyrstu telja líklegt að hann hefði veitt sér áverkana sjálfur. Í desember var síðan grískur félagi hans handtekinn í tengslum við andlátið en mennirnir höfðu verið saman kvöldið sem maðurinn lést.
Aðalmeðferð í málinu hefst á þriðjudaginn í næstu viku og stendur til 2. október.