Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar fordæmir viðbrögð ríkja sem gagnrýnt hafa spænsk stjórnvöld vegna ástandsins í Ceuta. Tuttugu og tvo af tuttugu og sjö aðildarríkjum Evrópusambandsins hafa óskað eftir neyðarviðræðum. Innanríkisráðherrar ESB hittast á fundi á þriðjudaginn til að ræða atvikið.
Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu er til skoðunar hvort samstarfsríki, þar á meðal Ísland, fái að sitja fundinn.
Stjórnvöld á Ítalíu ákváðu í gær að afnema tímabundið frjálsa för milli Ítalíu og Spánar. Forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, kallaði þetta neyðarráðstöfun til að vernda þjóðaröryggi og hún væri tímabundin. Finnland og Danmörk studdu ákvörðun Ítalíu og hafa Frakkar hert landamæraeftirlit sitt.
Nær allir þegar snúið aftur til Marokkós
Spænsk stjórnvöld segja að nær allir sem komust til borgarinnar hafi þegar snúið aftur til Marokkós. Minnst 67 létust. Þetta kemur fram í bréfi forsætisráðherrans Pedros Sanchez til Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Sanchez gagnrýnir Evrópusambandið og segir það ekki hafa stutt Spán. Þá hafi viðbrögð sumra ríkja verið eigingjörn, ólögmæt og til þess fallin að slá pólitískar keilur. Von der Leyen hefur vísað gagnrýni Sanchez á bug og segir ESB hafa stutt við Spán frá fyrstu stundu. Hún benti jafnframt á að enginn þeirra sem komu til Ceuta hefði komist inn á Schengen-svæðið.
Filippus VI konungur Spánar segir í skriflegri yfirlýsingu að grípa þurfi til ráðstafana til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.