Írska lögreglan (gardaí) hefur haft uppi á manni í Liverpool á Englandi sem lögreglan telur að geti haft mikilvægar upplýsingar um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni árið 2019. Maðurinn hefur nú, í gegnum lögmann sinn í Liverpool, hafnað því með öllu að mæta til yfirheyrslu.
Greint er frá þessu á heimasíðu Irish Independent.
Að sögn lögreglunnar hefur maðurinn hlotið dóma bæði á Íslandi og í Bretlandi en hefur ekki verið tengdur skipulagðri glæpastarfsemi. Brotaferill hans nær meðal annars yfir dóma vegna heimilisofbeldis á Íslandi og smáþjófnað úr skartgripaverslun í Bretlandi.
Áður hefur verið greint frá téðum manni í Hvar er Jón? – hlaðvarpsþáttaröð RÚV og RTÉ vorið 2024 – þar sem hann var tengdur við hvarf Jóns Þrastar.
Lögreglan komst að því að maðurinn hafi mætt til Írlands mánuði áður en Jón hvarf í Dyflinni, þann 9. febrúar 2019, en óvíst er hvenær hann yfirgaf landið aftur. Það var meðal þeirra lykilspurninga sem rannsóknarlögreglumenn vildu bera undir hann.
„Lögreglan sóttist eftir því að ræða við þennan mann, en í gegnum lögmann hefur hann hafnað því. Það eru ekki nægileg sönnunargögn til að handtaka viðkomandi,“ sagði heimildarmaður um málið.
Írska lögreglan hefur fengið óstaðfestar vísbendingar um að Jón, sem var fjögurra barna faðir og starfaði sem leigubílstjóri, kynni að hafa verið myrtur í misgripum eða vegna spilaskuldar. Þrátt fyrir þetta hefur rannsóknin ekki verið færð upp í manndrápsrannsókn heldur er málið enn flokkað sem mannshvarf.
Jón hvarf sporlaust eftir að hafa tekið þátt í pókermóti á Bonnington Hotel í Dyflinni árið 2019 og hefur ekkert spurst til hans síðan hann náðist á öryggismyndavél skömmu síðar. Lögreglan telur líklegt að hann sé látinn og ítrekar ákall sitt til almennings um upplýsingar.