Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri

AkureyriMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson
Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra undanfarna daga samhliða Bíladögum á Akureyri. Tveir einstaklingar eru í haldi vegna rannsóknar á alvarlegum líkamsárásum sem áttu sér stað í nótt.
Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Alls voru þrjár líkamsárásir tilkynntar. Í öðru málinu missti brotaþoli meðvitund en í hinu hlaut einstaklingur nefbrot. Fjórir voru handteknir vegna árásanna.
Lögregla hefur einnig sinnt fjölda annarra verkefna. Fjórir gistu í fangaklefum aðfaranótt föstudags vegna ölvunarástands og fimm voru handteknir síðustu nótt.
Aukinn fjöldi gesta hefur einnig valdið meira álagi í umferðinni og nokkur minni háttar umferðaróhöpp hafa verið tilkynnt.