Sjálfvirk lendingarför, skynvæddir drónar og öflug farartæki fyrir tunglfara eru meðal þess búnaðar sem bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur gert heyrinkunnugan. Þeim fyrrnefndu er ætlað að rannsaka og kortleggja harðneskjulegt yfirborð tunglsins áður en mannaðar ferðir hefjast og flytja þangað nauðsynlegan vísindabúnað.
NASA stefnir að 25 ómönnuðum ferðum fram til 2029 sem ætlað er að bera fjögur rúmtonn af búnaði til tunglsins. Farartækin, kraftmiklir jeppar, eiga að geta flutt tunglfarana langar vegalengdir um hrjóstrugan mánann.
Blue Origin, geimferðafyrirtæki Jeffs Bezos, Intuitive Machines og Astrobotic verða meðal annarra fengin til smíðinnar. Hins vegar hafa orðið tafir á hönnun og byggingu tunglfars SpaceX, fyrirtækis Elons Musk.
Geimferðastofnunin tilkynnti í mars að 20 milljörðum dala verði varið til byggingar bækistöðvar á suðurpóli tunglsins fyrir 2032, sem knúin verði hvort tveggja kjarn- og sólarorku.
Suðurpóllinn þykir einkar aðlaðandi því þar er frosið vatn að finna sem mætti nýta til drykkjar og súrefnisframleiðslu. Bækistöð gæti auðveldað leit að verðmætum efnum undir yfirborði tunglsins og lagt grunninn að ferðum til reikistjörnunnar Mars.
Bandaríkjamenn eru því staðráðnir í að snúa aftur til tunglsins áður en síðara kjörtímabili Donalds Trump forseta lýkur 2028 og eru í miklu kapphlaupi við Kínverja sem hafa ekki ólík markmið.
Kínversk áhöfn hélt að Tiangong-geimstöðinni í gær. BBC segir flesta sérfræðinga vera heldur efins um að áform Bandaríkjamanna gangi eftir og að líklegra sé að Kínverjar verði á undan að senda menn til tunglsins. Vel heppnuð mönnuð ferð Artemis II umhverfis tunglið í apríl breyti litlu um það.