Fellibylurinn Dujuan geisar yfir suðvesturströnd Japan og nærri tvær milljónir manna hafa verið beðnar um að yfirgefa heimili sín. Talið er að fellibylurinn haldi áfram í norðausturátt áður en hann leysist upp í Kyrrahafi síðar í vikunni.
Japanska veðurstofan varaði við því að fellibylurinn gæti orðið lífshættulegur en lækkaði svo hættustigið víða. Viðvaranir á hæsta stigi eru enn í gildi í Shinagawa, Toshima og Niijima og veðurstofan varar enn við lífshættu í bænum Oshima.
Yfirvöld í Japan biðja almenning að fylgjast með upplýsingum um veðrið.
50 þúsund án rafmagns
Vindhraði fellibylsins hefur verið 130 kílómetrar á klukkustund en vindhviður hafa náð nær 200 kílómetrum á klukkustund. Hvassir vindar hafa valdið rafmagnsleysi hjá meira en 50 þúsund manns, auk þess sem hundruðum flugferða hefur verið aflýst og lestarsamgöngur hafa verið stöðvaðar.
Stormar á Kyrrahafi hafa orðið öflugri vegna veðurfyrirbærisins El Niño sem er einkar öflugt í ár. El Niño getur haft áhrif á hitafar, úrkomu og veðuröfgar víða um heim og er útskýrt nánar í fréttinni hér að neðan.
Dujuan-fellibylurinn er 25. fellibylurinn sem geisar yfir Japan á þessu ári.