Yfirvöld á Gaza greindu frá því í gær að tekist hafi að ná 112 líkum undan rústum suðurhluta Gaza-borgar. Það tók björgunarfólkið 136 klukkustundir að ná líkunum undan rústunum sem var að miklu leyti gert með handafli.
Líkin voru af 40 börnum, 38 konum og sjö fötluðum einstaklingum. Talið er að lík 157 annarra til viðbótar séu grafin undir rústum sömu byggingar.
Talskona Alþjóðaráðs Rauða krossins á Gaza, Amani Al-Naouq, segir að þúsundir fjölskyldna hafi undanfarin tvö og hálft ár lifað í mikilli sorg og óvissu og beðið eftir því að geta endurheimt líkamsleifar ástvina sinna til að geta syrgt þá og borið til grafar.
„Leit að týndum einstaklingum og endurheimt líkamsleifa er afar mikilvægt mannúðarmál,“ segir Al-Naouq.
Þúsunda er enn saknað á Gaza og talið er að mörg þeirra séu grafin undir rústum bygginga eftir loftárásir Ísraela. Heilbrigðisráðuneytið á Gaza, sem er stjórnað af Hamas, segir að 73.300 hafi verið drepnir á Gaza. Sameinuðu Þjóðirnar segja þessar tölur áreiðanlegar.