Slökkvilið vinnur að því að rífa mæninn af íbúðablokkinni að Naustabryggju 20 þar sem eldur kom upp í þaki í dag þegar verið var að bræða á það þakpappa.
Lárus Pedersen varðstjóri segir í samtali við mbl.is að eldur hafi logað í þakinu þegar slökkvilið bar að garði. Eldurinn hafi hlaupið ofan af þakinu og undir allt bárujárnið og alveg upp í mæni og niður hinum megin.
„Þannig að vinnan hefur aðallega verið í því að rífa mæninn af og koma vatni niður beggja vegna til þess að slökkva eldinn. Hann er lokaður undir þakinu.“
Sofandi fólk í húsinu
Inntur eftir því hversu marga hefði þurft að rýma úr byggingunni segir Lárus að slökkvilið hafi ekki komið að neinum rýmingum en mögulega hafi lögregla sinnt þeim áður en slökkvilið kom á vettvang. Heimildir mbl.is herma að fólk hafi verið sofandi í húsinu.
„Fólkið var allt komið út sem við höfðum áhyggjur af og við hefðum ekkert farið strax í að rýma mikið nema bara íbúana efst uppi í mesta lagi.“
Klukkutími eftir
Erfitt er að segja til um hversu mikil vinna er eftir hjá slökkviliði. „Við verðum bara að sjá hvað okkur gengur að rífa vel af og tryggja að það sé hvergi eldur undir. Það gæti tekið alveg klukkutíma í viðbót,“ segir Lárus.
„Ég held að við séum búin að ná eiginlega öllum eldinum en við verðum samt að ganga úr skugga um að það sé ekki neins staðar hreiður undir.“
Spurður um tjón af völdum eldsins segir hann ekkert beint eldtjón um að ræða en að ein íbúð hafi orðið fyrir vatnstjóni.
„Við erum búin að senda út mannskap til að byrja að hreinsa upp eftir okkur vatnið þar inni.“

