Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, ekki rætt við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, síðan á föstudaginn var.
Ekki hefur náðst í oddvita flokkanna enn sem komið er.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur fundað með oddvitum Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknar um mögulega meirihlutamyndun að undanförnu. Lítið hefur spurst af þeim samtölum og Hildur haldið spilunum þétt að sér.
Hildur stóð með pálmann í höndunum eftir kosningarnar sem fóru fram 16. maí síðastliðinn. Heimildir fréttastofu hafa hermt að Framsókn verði með í nýjum meirihluta hvort sem Sjálfstæðisflokkurinn myndaði meirihluta með Viðreisn eða Miðflokki.
Góðan dag. Við hefjum þessa fréttavakt til að fylgjast með þróun meirihlutaviðræðna í borginni. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun myndin skýrast í dag um framhald þeirra.