Í liðinni viku bárust þær fréttir að meirihlutinn í borgarstjórn vildi afturkalla lóðir sem Rússneska rétttrúnaðarkirkjan og Félag múslima fengu úthlutað fyrir alllöngu síðan, án endurgjalds, enda hefðu framkvæmdir ekki hafist innan tilskilinna fresta. Þriðja trúfélagið, Ásatrúarfélagið, sem fékk úthlutað lóð um svipað leyti, byrjaði að byggja fyrir ellefu árum. Þar hafa framkvæmdir gengið hægt - en ólíkt hinum trúfélögunum þarf Ásatrúarfélagið ekkert að flýta sér.
Tillaga um afturköllun lóðanna var lögð fyrir borgarráð á fimmtudag en afgreiðslu hennar frestað. Ástæðan er sú að ekki þótti öruggt að fulltrúar trúfélaganna hefðu fengið tilkynningu um að þetta stæði til - að minnsta kosti ekki með formlega réttum hætti.
Það er þó greinilegt hver vilji meirihlutans er.
En eitt er að fá lóð - annað að byggja - og miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir um tekjur og fjárhagsstöðu trúfélaganna gæti tekið dágóðan tíma að safna fyrir byggingarkostnaði.
Frestur rétttrúnaðarkirkjunnar framlengdur 2019 og 2021
Byrjum á Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni, eða Moskvu-Patríarkatinu, eins og söfnuðurinn heitir formlega. Hann fékk lóð undir kirkju árið 2008 á eftirsóttum stað í Vesturbænum, við Mýrargötu 21 til 23. Í samningi frá 2011 var kveðið á um að hefja skyldi framkvæmdir innan þriggja ára og þeim vera lokið innan þriggja ára þaðan í frá, sem sagt 2017. Fresturinn var framlengdur árið 2019 og aftur 2021, en framkvæmdir eru enn ekki hafnar.
Teikningar að mosku samþykktar 2024
Svipaða sögu er að segja af Félagi múslima.
Árið 2013 fékk félagið lóð undir mosku við Suðurlandsbraut 76, við hliðina á nýbyggingu Hjálpræðishersins. Framkvæmdir skyldu hefjast fyrir 2016 og vera lokið fyrir 2019. Ekki er byrjað að byggja. Teikningar að moskunni liggja þó fyrir og voru síðast samþykktar af byggingarfulltrúa 2024, samkvæmt upplýsingum frá félaginu. Moskan á að verða um 680 fermetrar að stærð, rúmlega helmingi minni en hús Hjálpræðishersins.
Teikningar af rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni við Mýrargötu fundust ekki í Borgarvefsjá - en útlitsteikningar hafa þó verið birtar á vefnum. Prestur kirkjunnar sagði við fréttastofu Vísis að stefnt hefði verið að framkvæmdum í haust.
Hofið í Öskjuhlíð átti að vera tilbúið 2016
Lóðasaga Ásatrúarfélagsins er lengri og öllu flóknari. Framkvæmdir við hof félagsins í Öskjuhlíð hófust 2015 og þá reiknaði allsherjargoðinn með að þeim yrði lokið strax árið 2016 - en það gekk ekki upp, eins og farið verður yfir hér á eftir. Samkvæmt því sem komið hefur fram hjá félaginu var ekki kveðið á um að framkvæmdum skyldi vera lokið fyrir tiltekinn tíma.
Hofið á að verða um 440 fermetrar að stærð, fyrst rís helgidómur og í seinni áfanga á að byggja félagsheimili. Alda Vala Ásdísardóttir, staðgengill allsherjargoða, segir að vinnu við uppsteypu hofsins hafi lokið 2019. „Þá gerist það, að það kemur covid. Og miðað við það sem hafði verið unnið að það, þá snarbreyttust allir kostnaðarliðir, nánast í einu vetfangi,“ segir hún. Bæði stálverð og flutningskostnaður hefðu hækkað mikið. Þar með hefðu forsendur kostnaðaráætlunar brostið.
Stefnt að útboði á hvolfþaki 2027
Árið 2019 var sem sagt búið að steypa botnplötu, niðurgrafna útveggi og lítið þjónustuhús. Í þjónustuhúsinu innréttaði félagið lítinn sal til bráðabirgða og er einnig með skrifstofur í gámum á lóðinni. Þangað flutti félagið úr Síðumúla í Reykjavík 2021. Lóðin er þó enn byggingarlóð og því afgirt og lokuð, nema á afgreiðslutíma. Kostnaður við þessar framkvæmdir er um 150 milljónir, nettó, segir Alda Vala.
Áætlaður kostnaður við hvolfþakið er á bilinu 260-300 milljónir króna, segir Alda Vala en bætir við að það sé lenska hér á landi að 20-30% leggist ofan á kostnaðaráætlanir. Reisa þarf hvolfþakið í einni atrennu og er stefnt á að framkvæmdir verði boðnar út seinni hluta árs 2027.
Alda Vala vonast til að framkvæmdum utanhúss og á lóð ljúki árið 2028. Miðað við áætlanir verður kostnaður þá orðinn í kringum 450 milljónir en þá eru reyndar framkvæmdir innandyra eftir.
Tekjurnar byggja á sóknargjöldum
Það kostar sem sagt sitt að byggja hof. Og þá er ekki úr vegi að fara yfir fjárhagslega stöðu þeirra trúfélaga sem ekki eru byrjuð á sínum húsum.
Samkvæmt ársreikningum Félags múslima eru árlegar tekjur félagsins um 13 milljónir, að mestu vegna sóknargjalda tæplega 500 félagsmanna. Eignir félagsins, sem er aðallega fasteign í Ármúla, eru alls um 73 milljónir. Félagið skuldar ekki krónu.
Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins fékk 9,5 milljónir frá sínum 650 meðlimum í sóknargjöld í fyrra. Frá 1. janúar það ár hefur verið skilaskylda á ársreikningum trúfélaga - en rétttrúnaðarkirkjan hefur ekki skilað sínum reikningi og því liggur ekkert fyrir í opinberum gögnum um aðrar tekjur eða eignir.
Um 45 milljóna afgangur af 80 milljóna tekjum
Ásatrúarfélagið er langfjölmennast þessara félaga, með um 5.500 félagsmenn, 16 ára og eldri, samkvæmt yfirliti Fjársýslunnar. Í fyrra fékk félagið 81 milljón í sóknargjöld og voru það nánast einu tekjur félagsins. Samkvæmt ársreikningi fyrir síðasta rekstrarár var afgangurinn myndarlegur – um 45 milljónir af rúmlega 80 milljóna tekjum. Að sögn Öldu eru nú komnar um 200 milljónir í sjóð og mun félagið halda áfram að safna þangað til að það á nægt fé til að hefja vinnu við hvolfþakið.
Miðað við að Ásatrúarfélaginu hefur ekki gengið betur en raun ber vitni að safna fyrir hofinu, með margfalt fleiri félagsmenn en hin trúfélögin og þar af leiðandi hærri tekjur, hlýtur að mega álykta sem svo að það gæti tekið þau dágóðan tíma að safna fyrir sínum húsum, að minnsta kosti ef reglulegar tekjur félaganna eiga að duga fyrir kostnaði.
Fulltrúar þessara trúfélaga sögðust ekki hafa tök á að tala við Spegilinn í dag.
Í skriflegu svari frá fulltrúa Félags múslima kemur fram að félagið muni mótmæla mögulegri afturköllun á lóðinni. Þá vilji félagið ekki hefja framkvæmdir við húsið fyrr en fjármögnun er lokið.