Tæplega 80% nemenda Menntaskólans að Laugarvatni eru í skólakórnum en alltaf er mikill áhugi á kórsöng í skólanum. Í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi er líka fjölmennur kór nemenda en sami stjórnandi stjórnar báðum kórunum.
Kórar skólanna halda reglulega tónleika og þá oftast einir og sér en stundum syngja þeir saman eins og gerðist nýlega á tónleikum í Selfosskirkju. Það er að mörgu að hyggja þegar kórum er stjórnað og ekki síður þegar kórstjórinn er líka undirleikari kórsins en Stefán Þorleifsson er stjórnandi og undirleikari beggja kóranna.
Þetta eru ótrúlega flottir kórar hjá þér.
„Já, þau eru skemmtileg og halda mér ungum og upp á tánum,” segir Stefán.
Hvernig er að vera með tvo svona menntaskólakóra?
„Það er bara helmingi skemmtilegra en að vera með einn, ég get eiginlega ekkert annað sagt.”
Stefán segir að lagaval kóranna sé mjög fjölbreytt og nái yfirleitt vel til nemenda í kórunum, eins og dægurlög og klassísk lög.
„Hugmyndin er svolítið hjá mér er að kljást við allt og ólíka músík. Við erum t.d. að leika okkur núna í FSu-kórnum með Fjöllin hafa vakað en ég held að enginn kór hafi sungið það mér vitanlega,” segir Stefán.
Báðir kórarnir eru nýkomnir heim frá útlöndum þar sem sungið var af fullum krafti. Fjölbrautaskólakórinn var á Ítalíu og Laugarvatnskórinn í Svíþjóð en í þeim kór eru nánast allir nemendur skólans, eða um 115 af um 150 nemendum.
En hvað er svona skemmtilegt við að syngja í kór?
„Það er bara gaman að vera öll saman og gaman að mæta á æfingar og syngja á tónleikum,” segir Fannar Óli Ólafsson, nemandi í Menntaskólanum að Laugarvatni.
En stjórnandinn, er hann ekki svona léttruglaður?
„Jú, jú, það er óhætt að segja það en það er bara gaman að honum,” bætir Fannar Óli við.
En hann stendur sig vel? „Já, hann stendur sig prýðilega,“ segir Þórey Kristín Rúnarsdóttir, nemandi í Menntaskólanum að Laugarvatni.
Og þá er það brot af þjóðsöngnum frá kórum skólanna.