Þrír þingmenn Miðflokksins lýstu undrun sinni á Alþingi í dag vegna þeirrar ákvörðunar Sjálfstæðisflokksins að mynda meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokknum í borginni.
Tilkynnt var um samstarfið fyrr í dag en sjálfstæðismenn höfðu kost á því að mynda tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum þess í stað.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, sagði Sjálfstæðisflokkinn með þessari ákvörðun hafa tekið ákvörðun um að vinna til vinstri og telur flokkinn ekki hafa áhuga á því að standa við eigin kosningaloforð.
Kaus að vinna til vinstri
Sagði Nanna það skjóta skökku við að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu í gærkvöldi í umræðu um ráðgerða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið lýst því yfir að þeir treystu ekki flokknum en borgarfulltrúar flokksins hefðu svo myndað meirihluta með Viðreisn degi síðar.
Telur Nanna marga kjósendur hafa trúað því að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði sér að boða breytingar og flokkurinn hafi því ásamt Miðflokknum aukið mikið við sig undir lok baráttunnar.
„Sjálfstæðisflokkurinn kaus að vinna til vinstri sem sýnir að það er ekki mikill áhugi á að standa við kosningaloforðin. Það átti bara að ná í hægri atkvæðin og vinna svo til vinstri. Nú á að endurtaka leikinn um að mynda meirihluta með breiða skírskotun og við munum öll eftir sjö ára setu slíks meirihluta hér í þinginu,“ sagði Nanna og bætir við að sprenging hafi orðið í nýskráningum í Miðflokkinn í dag.
„Umhugsunarvert“
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, kom í ræðustól undir dagskrárliðnum störf þingsins og fjallaði þar um umræðuna um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu sem stendur nú yfir í þinginu. Hún vék þó að meirihlutamynduninni í lok ræðunnar.
„Það var merkilegt að upplifa hér rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hreinsuðu sig af mælendaskrá í umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra Viðreisnar sem við höfum rætt síðastliðna daga, köstuðu inn handklæðinu. Fyrir hvað og til hvers? Jú, í dag var svo staðfest að Sjálfstæðisflokkurinn, ásamt Framsóknarhjólinu, hefur leitt Viðreisn til valda í höfuðborginni okkar, Reykjavík. Umhugsunarvert.“
Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, ræddi einnig um Evrópumálin í sinni ræðu en kom einnig inn á meirihlutamyndunina í lok hennar.
„Ég verð að segja að það vakti undrun mína og líka vonbrigði að sjá Sjálfstæðisflokkinn draga sig í hlé frá umræðu um þetta mál í gær á sama tíma og flokkurinn tók sérstaka ákvörðun um að gera sér far um að tryggja stöðu Viðreisnar í meirihlutasamstarfi í stærsta sveitarfélagi landsins um ókomna tíð.“