Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Borgarbyggðarlistans handsöluðu meirihlutasamstarf næsta kjörtímabilið. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð.
Þar segir einnig að spennandi tímar séu framundan í Borgarbyggð og Skorradalshreppi.
Atkvæðin í Borgarbyggð skiptust heldur jafnt milli þeirra fjögurra flokka sem buðu þar fram. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 29,3% atkvæða og þar með þrjá menn, Framsóknarflokkurinn 25,4% og tvo menn, Borgarbyggðarlistinn 23,5% og tvo menn.