Maríanna fyrsti kvenkyns rallýökumaðurinn býr í tösku

Maríanna Friðjónsdóttir, lífskúnstner og fyrrum rallýökumaður og alþingismaður, hefur síðustu 15 ár búið í ferðatösku og látið eigið frelsi stýra förinni. Hún segist nánast engar veraldlegar eigur eiga sem binda hana og vílar ekki fyrir sér að tjalda á möl eða fjallstindum í leit að ævintýrum um Evrópu. Rætt var við Maríönnu í sjónvarpsþættinum Á gamans aldri í umsjón Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur.
Maríanna á að baki afar fjölbreyttan feril en hún braut blað í sögunni sem fyrsti kvenkyns rallýökumaður landsins. Hún hefur einnig rekið veitingahús í Danmörku, setið á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn og starfað við sjónvarpsframleiðslu beggja vegna Atlantshafsins.
Í dag einkennist líf hennar af mikilli naumhyggju og ferðalögum.
„Ég hef valið að vera í þessu flæði og frelsi að eiga ekkert sem bindur mig. Ég get pakkað niður á morgun í 20 kílóa tösku og sett skrifstofudótið mitt í lítinn bakpoka og það er allt sem ég á,” segir Maríanna.
Steik í morgunmat
Líkamleg og andleg heilsa er Maríönnu ofarlega í huga en hún stundar hugleiðslu á hverjum morgni. Hún fylgir jafnframt óhefðbundnum venjum þegar kemur að næringu og borðar meðal annars steik í morgunmat. Þá er hún óhrædd við tæknina og nýjungar, elskar gervigreindina og hefur auk þess kynnt sér tilfinningalíf plantna sérstaklega. Hún segist setja sér það markmið að læra að minnsta kosti einn nýjan hlut á hverjum einasta degi.
Læra að eldast saman í Portúgal
Þrátt fyrir stöðugt flakk á milli staða hefur Maríanna komið sér upp fastri vetrarsetu í litlu sveitaþorpi í Portúgal. Þar dvelur hún ásamt 93 ára gamalli móður sinni, Viktoríu.
Innan um blómstrandi tré og fuglasöng njóta þær mæðgur þess að eldast saman. Maríanna telur það mikil forréttindi að fá að fylgja móður sinni á þessum æviskeiðum og bendir á að eins og með allt annað í lífinu, þá þurfum við að læra listina að eldast.