Eins og fram hefur komið voru fimm ungir karlmenn handteknir um helgina á Akureyri fyrir að hafa beint skotvopnum að fólki sem reyndust vera leikfangabyssur. Viðbrögð við málinu voru hörð og sumir, þar á meðal stjórnmálamenn, gerðu mikið úr að bersýnilega væri um menn af erlendum uppruna að ræða og hvöttu til þess að þeim yrði tafarlaust vísað úr landi og sögðu íslensku samfélagi væri hætta búin.
Margrét hugsi vegna leikfangabyssumálsins á Akureyri - „Slíkur málflutningur hefur ekki þann tilgang að auka öryggi landsmanna“