Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfu tveggja sakborninga í máli sem varðar hópárás og tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í marsmánuði, um að verjendur þeirra fái afhent rafræn gögn úr rannsókn málsins. Verjendurnir töldu nauðsynlegt að fá afrit af mynd- og hljóðupptökum og öðru rafrænu efni til að geta undirbúið varnir skjólstæðinga sinna með fullnægjandi hætti, en bæði héraðsdómur og Landsréttur féllust ekki á þau sjónarmið.Keyrðu á manninn og stungu í rasskinn
Manndrápstilraunin á Höfðatorgi: Verjendur fá ekki aðgang að rafrænum gögnum