Þrír eru núna í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á andláti pólsks manns í Vallargerði sunnudaginn 9. ágúst. Einn er í gæsluvarðhaldi hér á landi og hefur einum verið sleppt. Tveir eru í gæsluvarðhaldi erlendis, þar af annar á Spáni og hinn í Póllandi.„Það er bara lítið að frétta eins og staðan er núna,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Manndráp í Vallargerði: Þrír eru í gæsluvarðhaldi – „Við erum bara enn að finna leiðina“