Maður á fertugsaldri sem féll í Stuðlagil á Austurlandi þann 24. ágúst var pólskur. Maðurinn fannst látinn í ánni.Greint er frá þessu í pólskum miðlum í gær.Í miðlinum GPS segir að maðurinn hafi verið 39 ára og frá bænum Środa Wielkopolska í vesturhluta landsins en bjó í Varsjá. Ekki hefur verið greint frá nafni mannsins en hann var á ferðalagi um Ísland með hópi af vinum sínum.
Maðurinn sem féll í Stuðlagil var pólskur