Umfangsmikil björgunaraðgerð hófst eftir að maðurinn féll í Jöklu en tilkynning um slysið barst rúmlega eitt í gærdag. Um hundrað manns komu að leitinni, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.
Lögregluþjónar, björgunarsveitarmenn, sérsveit Ríkislögreglustjóra, Rauði krossinn, sjúkralið og slökkvilið kom að leitinni.
Þar segir að aðstandendur hafi verið upplýstir um slysið og að hugur viðbragðsaðila sé hjá þeim sem eigi sárt um að binda.
Lögreglan segir að ekki verði frekari upplýsingar gefnar að svo stöddu.
Hér að neðan má sjá myndband frá leitinni í gær.
Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.