Karlmaður sem féll i Jökulsá á Brú í Stuðlagili í gærmorgun er látinn. Hann fannst á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Maðurinn er erlendur ferðamaður á fertugsaldri. Lögregla er búin að hafa samband við aðstandendur mannsins og upplýsa þá um slysið.
Maðurinn fannst ekki langt frá staðnum þar sem hann féll í ána.
Lögreglu var tilkynnt um að maður hefði fallið í ána klukkan 13:15 í gær. Um hundrað manns tóku þátt í leit að manninum, björgunarsveitir og lögregla. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út.
Kristmundur Stefán Einarsson lögreglustjóri segir að maðurinn hafi verið í hópi ferðamanna. Hann vill ekki gefa neitt upp um tildrög slyssins að svo stöddu en þau eru til rannsóknar. „Það er of snemmt að segja hvað gerðist nákvæmlega,“ segir hann.