Hvergi á landinu hafa risið eins mörg stoðvirki og í hlíðunum ofan Siglufjarðar. Leiðigarðarnir eru þrír og þvergarðarnir fimm. Þeir hafa staðið sína pligt undanfarna áratugi og beint ofanflóðum, sem eru tíð við fjörðinn, fram hjá byggðinni.
Sigurður Benediktsson, íbúi á Suðurgötu á Siglufirði, þekkir það vel en hann lenti í snjóflóði skammt frá heimili sínu fyrir tíma varnargarðanna.
„Við vorum einu sinni á ferð í hádeginu á bílnum okkar og þá kom snjóflóð í gegnum ytra húsið hérna í Suðurgötu 76 og fór með bílinn niður fyrir veg. En það slapp nú alveg, það slasaðist enginn,“ sagði Sigurður í kvöldfréttum RÚV í kvöld.
Óvíst hvort varnargarðarnir haldi
Sigurður býr nú inni á því sem kallað er svæði C og er syðst í bænum, en þar eru 16 íbúðarhús og er varnargarður þar fyrir ofan. Óvíst er hvað gerist ef þar kemur stórt flóð. Garðurinn gæti haldið en líkur eru á að það flæði yfir.
Ofanflóðasérfræðingar hafa keyrt ótal líkön um hvernig flóðin falli í mismunandi farvegi og hvernig garðarnir taki við þeim og sýna nokkur þeirra að flætt gæti yfir garðana og inn á svæði C. Sex ár tók að vinna úr útreikningunum og miðla þeim til bæjarbúa.
Líklegt að byggðar verði frekari varnir
Níu milljörðum hefur verið varið í varnargarða ofan Siglufjarðar síðan 1998. Miðað við nýjustu rannsóknir er ljóst að það þarf meira til, en það er óráðið hvað það gæti kostað.
Líklegt er að byggðar verði frekari varnir, en teljist það hagkvæmara fyrir sveitarfélagið eða ráðlegra að kaupa upp eignir þeirra sem búa á mesta hættusvæðinu, er heimild til þess í lögum.
Horfir stundum kvíðinn upp í fjall
Sigurði líður vel í húsinu sem hann hefur búið í alla ævi en óhjákvæmilega horfir hann stundum upp í fjall.
„Hugsanlega einhvern tímann í vondum veðrum verður maður svolítið kvíðinn og maður veit aldrei hvenær manni verður hent út og svoleiðis,“ segir Sigurður.
Auk Siglufjarðar hefur staðan verið endurmetin á Ólafsfirði, í Bolungarvík, á Ísafirði, á Bíldudal og í Neskaupstað. Á nokkrum stöðum reyndist hætta á yfirflæði yfir varnargarða meiri en áður var talið og verður samráð haft við íbúa á þessum stöðum.