Lögreglumenn þurftu að hafa talsvert fyrir handtöku manns sem réðst að öðrum í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt og ógnaði honum með hnífi. Hann flúði á bíl sem lögregla sá sig knúna til að aka á svo maðurinn næmi staðar. Hann reyndi þá að slást við lögreglumennina en var að lokum vistaður í fangaklefa.
Lögreglan leitar ungmenna sem köstuðu flugeldi inn í bíl í miðborginni þannig að meiðsl og skemmdir hlutust af. Einnig er til rannsóknar slagsmál í úthverfi þar sem einn ógnaði öðrum með grjóti. Báðir voru farnir þegar lögreglu bar að.
Bráðamóttakan óskaði eftir liðsinni lögreglu vegna ungmennis sem leitaði þangað aðstoðar.
Það mál er til rannsóknar. Innbrotsþjófur lét greipar sópa í húsi í vesturborginni meðan íbúar sváfu en annar grunaður um innbrot reyndist lyklalaus húsráðandi sem skreið inn um glugga. Minnst tvö önnur innbrot voru framin í nótt, í heimahús og fyrirtæki.
Bíll eyðilagðist í bruna í úthverfi og lögregla rannsakar eldsupptök. Auk þessa höfðu lögreglumenn afskipti af ökumönnum og báðu skemmtanaglaðan borgarbúa um að lækka í tónlistinni, sem hann gerði.