Björgunarsveitir frá Kirkjubæjarklaustri að Höfn voru kallaðar út klukkan hálf tvö í nótt vegna ferðamanna sem villtust í svartaþoku við Kristínartinda í Vatnajökulsþjóðgarði.
„Sveitin í Öræfunum átti þarna tvo, þrjá öfluga einstaklinga sem svöruðu kallinu strax og fóru gangandi af stað frá Skaftafelli og upp að Kristínartindum,“ segir Friðrik Jónas Friðriksson, formaður svæðisstjórnar.
Alls tóku fimmtán þátt í aðgerðunum, öll fótgangandi.
„Það er ekki fært á neinum tækjum á Skaftafellsheiðinni og hefur aldrei verið þannig þetta er erfitt svæði hvað það varðar og þú kemst ekkert inná þetta eða getur nálgast þetta neins staðar á neinum tækjum,“ segir Friðrik Jónas.
Þegar þokunni létti um stund var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til aðstoðar við leitina.
„En það var ekki nema svona eins og hálfs tíma gluggi sem við höfðum til að gera það, þangað til þokan skall á aftur, þannig það gekk ekki upp að nota þyrluna.“
En hvernig gekk ykkar fólki að athafna sig í þokunni og rata?
„Því gekk ágætlega, þetta er þekkt gönguleið sem er þarna og sem fólkið var á. Það eina er að þetta er svolítið langt,“ segir Friðrik Jónas.
Gangan að Kristínartindum er hátt í átta kílómetrar með yfir 1.000 metra hækkun. Fyrstu sveitir komu að fólkinu um fimmleytið í morgun. Það var orðið bæði kalt og óttaslegið.
„Þau settu það í neyðarskýli og voru með hitapoka sem þau settu inn á þau, komu upp smá hita í þau og klukkutíma síðar voru síðar voru menn tilbúnir að fara að labba af stað. Þau voru að skila sér niður á tjaldstæði um hálf níu í morgun.“