Lögregluyfirvöld á svæðinu umhverfis Minneapolis og St. Paul í Minnesota glíma við röð skotárása sem þau tengja við gengi ungra Bandaríkjamanna af sómölskum uppruna. Hóparnir ferðast milli bæja, deilur á samfélagsmiðlum verða að skothríð og skortur á samvinnu vitna og þolenda torveldar rannsóknir.
Meira en 100 skotum var hleypt af í íbúðahverfi í Bloomington aðfaranótt 6. október. Fjórum dögum áður særðust tveir í skotárás við skólaíþróttaleik í nágrannabænum Eden Prairie og þúsundir áhorfenda þurftu að yfirgefa leikvanginn. Nú verður öryggisgæsla hert enn frekar, meðal annars með málmleitartækjum og lögregludrónum.
Lúxusbílar og dýr heimili
Booker Hodges, lögreglustjóri í Bloomington, segir gengin sem lögreglan rannsakar ólík þeim sem hann hafi áður fengist við. Hann segir ungmennin komafrá tveggja foreldra heimilum, búi í íbúðum þar sem mánaðarleigan sé 3.500 dalir og aki BMW, Mercedes og öðrum dýrum bílum.
Að hans sögn finnur lögreglan hvorki fíkniefni né stórar peningaupphæðir við húsleitir eins og hún hafi gjarnan gert í rannsóknum á öðrum gengjum. Hann segir viðkomandi kaupa skotvopn löglega og að ofbeldið snúist um deilur á samfélagsmiðlum.
„Þeir búa í húsum sem kosta meira en ég hef efni á,“ sagði Hodges á blaðamannafundi 6. október.
„Þeir eru einfaldlega að skjóta hvern annan vegna deilna á samfélagsmiðlum. Punktur. Það er allt og sumt.“
Segir ótta við rasisma skyggja á vandann
Í viðtali við FOX 9 hinn 8. október gagnrýndi Hodges að fólk veigraði sér við að tala hreint út um hvaða hópa lögreglan væri að rannsaka.
„Ég legg metnað í að segja sannleikann. Ég ætla ekki að fegra þetta. Við erum að fást við sómölsk-bandarísk gengi,“ sagði hann.
„Ef þú skilgreinir ekki vandann muntu ekki leysa hann. Fólk hefur meiri áhyggjur af því að eitthvað sé kallað rasískt en af því að leysa vandann. Mér finnst það einfaldlega fáránlegt.“
Hodges tók jafnframt fram að yfirgnæfandi meirihluti Bandaríkjamanna af sómölskum uppruna væri ekki viðriðinn ofbeldið og að gengin væru ekki dæmigerð fyrir samfélagið.
Skothríð við kirkju, bensínstöð og í íbúðahverfi
Lögreglan tengir skothríðina í Bloomington við sómölsku gengin. Eftirlitsmyndband sýndi að minnsta kosti tvo menn hleypa af skotum og einn hlaut minniháttar meiðsl. Samkvæmt lögreglu var notaður ólöglegur búnaður sem breytir skammbyssum í sjálfvirk skotvopn.
Kvöldið áður hafði var svo skotárás við bensínstöð í Eden Prairie. Enginn særðist og þeir sem áttu hlut að máli voru farnir þegar lögregla kom.
Í Edina var einnig skotið að hópi fólks sem lék körfubolta við Our Lady of Grace kirkjuna 22. september. Þar var yfir 50 skotum hleypt af. Lögreglustjórinn í Edina segir skotárásirnar þar hluta af stærra mynstri gengjaofbeldis.
Vitni halda upplýsingum eftir
Lögreglan segir rannsóknir í Edina hafa strandað vegna skorts á samvinnu. Vitni og þolendur búi yfir upplýsingum um atburðina en tali ekki við lögregluna því hún er ekki álitin vera hluti af samfélagi þeirra.
Þá torveldar ferðafrelsi gengjanna starf lögreglunnar. Lögregluyfirvöld í Ramsey sýslu segja hópana fara milli bæja til að hitta aðra hópa eða stofna til átaka, á meðan hvert lögreglulið starfi innan síns umdæmis.
Tvær sérsveitir á vegum lögregluyfirvalda hafa þegar fengið það verkefni að einbeita sér að gengjaofbeldinu. Þá hafa komið fram kröfur um sameiginlega sérsveit fyrir svæðið og meiri miðlun upplýsinga milli lögregluliða.
Málmleitartæki og drónar við næsta leik
Fimm menn hafa verið ákærðir vegna átakanna við skólaíþróttaleikinn. Átján ára maður er sakaður um að hafa skotið og sært tvo. Hann kom fyrir dóm 12. október eftir að hafa verið látinn laus gegn tryggingu. Dómari skyld
aði hann í eftirlit og bannaði honum meðal annars að bera vopn eða hafa samband við þolendurna.
Við næsta heimaleik skólans, miðvikudaginn 14. október, þurfa allir áhorfendur að fara í gegnum málmleitartæki. Bakpokar verða bannaðir, eftirlit á bílastæðum aukið og lögregludrónar verða á lofti yfir svæðinu.