Lögmaður Helga Bjarts stígur fram og gagnrýnir fjölskyldu drengsins - DV
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Lögmaður Helga Bjarts stígur fram og gagnrýnir fjölskyldu drengsins - DV

Lögmaður Helga Bjarts stígur fram og gagnrýnir fjölskyldu drengsins - DV

Lögmaður Helga Bjarts Þorvarðarsonar, Oddgeir Einarsson hæstaréttarlögmaður, sendi í dag frá sér yfirlýsingu um mál skjólstæðings síns. Í henni rekur hann aðstæður Helga Bjarts, fjölmiðlaumfjöllun um málið og rangfærslur sem hann segir foreldra drengsins, brotaþola, fara með. Segir Oddgeir að honum finnist hann knúinn sem verjandi skjólstæðings síns að stíga fram og benda á nokkrar staðreyndir í málinu sem unnt er að sannreyna með því að lesa dóminn.

„Var niðurstaðan sú að skjólstæðingur minn var sýknaður af öllum alvarlegustu ákæruatriðunum og sleppt úr gæsluvarðhaldi að dómnum uppkveðnum.

Skjólstæðingur minn er fjögurra barna faðir á fimmtugsaldri sem aldrei áður hefur verið grunaður um að hafa kynferðislegan áhuga á börnum. Hverjum sem les þennan dóm má vera ljóst að þrátt fyrir sakfellingu um kynferðislega áreitni er einnig um þann möguleika að ræða að maður hafi drukkið sig í óminnisástand og endað á heimili fyrrum samstarfskonu, sem hann hafði verið í samskiptum við fyrr um nóttina, tekið í aftanverðan buxnastreng manneskju sem lá í rúmi og horfið á brott um leið og hann hafi áttað sig á að um barn var að ræða. Þrátt fyrir að öll atburðarrás kvöldsins, sem og frásögn brotaþola, geti stutt þá mögulegu atburðarrás hafa fjölmiðlar ekki greint frá þeim staðreyndum málsins.“ 

Helgi Bjartur Þorvarðarson var sakfelldur fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni með dómi Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 15. apríl síðastliðinn. Var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið. Helgi Bjartur hafði þegar afplánað þrjá mánuði í fangelsi í gæsluvarðhaldi þegar dómurinn fékk.

Sjá einnig: Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði

Segir foreldra drengsins fara með rangfærslur 

Segir Oddgeir foreldra drengsins á þeim átta mánuðum sem liðu milli brots Helga Bjarts og dóms hafa margítrekað farið í viðtöl í fjölmiðlum og fjallað ítarlega um málið og meðal annars látið fjölmiðlum í té valin gögn úr málinu.

„Hefur umfjöllun sú sem birtist í fjölmiðlum verið vægast sagt villandi. Hefur skjólstæðingur minn ekki viljað tjá sig um málið á opinberum vettvangi fyrir utan eina almenna yfirlýsingu til að undirstrika að það væri fleira í málinu en komið hefði fram og að dómstólar myndu taka afstöðu til þess. Hafði skjólstæðingur minn ekki í hyggju að fjalla frekar um málið,“ segir Oddgeir sem segir rangfærslur enn hafa verið birtar í viðtali við foreldra brotaþola daginn eftir að dómurinn féll.“ 

Hvetur þá sem vilja hafa skoðun á málinu að lesa dóminn

Segir Oddgeir að æskilegast væri að þeir sem vilja móta sér skoðun á málinu lesi dóminn í heild sinni og bendir sérstaklega á að verkefnastýra hjá Barnaheillum sem gaf viðtal um málið í sjónvarpsfréttatíma RÚV 17. apríl hefði átt að lesa dóminn.

„Skjólstæðingur minn áttar sig fyllilega á því að frumorsökin fyrir þeirri vanlíðan sem þetta mál hefur valdið öllum sem því tengjast er hans með því að hafa farið í ölæði inn á heimili fjölskyldu fyrrum samstarfskonu sinnar sem hann áleit vera vinkonu sína. Hann veit að hann er ekki í neinni aðstöðu til að skipta sér að því hvort, hversu mikið og hvernig fólk kýs að tjá sig um málið jafnvel þó málið sé viðkvæmt og talsvert af börnum sem því tengjast óbeint. Hins vegar hefur stöðug fjölmiðlaumfjöllun valdið því að ítrekað hafa líflátshótanir borist og heimilisfang fjölskyldu hans og nöfnum á öðrum fjölskyldumeðlimum hans meðan annars verið dreift á spjallþráðum við fréttir af málinu sem iðulega hafa komið upp eftir hin ítrekuðu viðtöl við foreldra brotaþola. Í þessu ljósi telur skjólstæðingur minn illskiljanlegt það sem fram kemur í dómnum um að vitni segist hafa farið í viðtöl í fjölmiðlum vegna þess að þau hafi viljað „stjórna umræðunni“ um málið og að þau hafi farið í Kastljósþátt til þess m.a. að biðja fólk um að fara varlega gagnvart sakborningum og þau vilji ekki að skjólstæðingi mínum verði gerður skaði. Þó svo foreldrarnir beri enga ábyrgð á hótunum annarra hafa umræddar hótanir þó nær eingöngu komið fram í tengslum við ítrekuð viðtöl við þau. Af þessum sökum er mikilvægt að umfjöllun um málið byggi á staðreyndum.“

Yfirlýsingin hljóðar svo í heild sinni:

Miðvikudaginn 15. apríl sl. féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness í máli skjólstæðings míns sem hafði verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni. Hefur dómurinn nú verið verið birtur almenningi á heimasíðu réttarins og var niðurstaðan sú að skjólstæðingur minn var sýknaður af öllum alvarlegustu ákæruatriðunum og sleppt úr gæsluvarðhaldi að dómnum uppkveðnum.

Skjólstæðingur minn er fjögurra barna faðir á fimmtugsaldri sem aldrei áður hefur verið grunaður um að hafa kynferðislegan áhuga á börnum. Hverjum sem les þennan dóm má vera ljóst að þrátt fyrir sakfellingu um kynferðislega áreitni er einnig um þann möguleika að ræða að maður hafi drukkið sig í óminnisástand og endað á heimili fyrrum samstarfskonu, sem hann hafði verið í samskiptum við fyrr um nóttina, tekið í aftanverðan buxnastreng manneskju sem lá í rúmi og horfið á brott um leið og hann hafi áttað sig á að um barn var að ræða. Þrátt fyrir að öll atburðarrás kvöldsins, sem og frásögn brotaþola, geti stutt þá mögulegu atburðarrás hafa fjölmiðlar ekki greint frá þeim staðreyndum málsins.

Á þeim átta mánuðum sem liðnir eru frá því að málið kom upp hafa foreldrar brotaþolans margítrekað farið í viðtöl í fjölmiðlum og fjallað ítarlega um málið og meðal annars látið fjölmiðlum í té valin gögn úr þessu viðkvæma sakamáli. Hefur umfjöllun sú sem birtist í fjölmiðlum verið vægast sagt villandi. Hefur skjólstæðingur minn ekki viljað tjá sig um málið á opinberum vettvangi fyrir utan eina almenna yfirlýsingu til að undirstrika að það væri fleira í málinu en komið hefði fram og að dómstólar myndu taka afstöðu til þess. Hafði skjólstæðingur minn ekki í hyggju að fjalla frekar um málið.

Hinsvegar birtust enn og aftur rangfærslur í viðtali við foreldra brotaþola í kvöldfréttatíma RÚV og á ruv.is þann 16. apríl sl. þar sem fullyrt að skjólstæðingur minn hefði gert hluti sem sérstaklega er tekið fram í dómnum að hann sé sýknaður af eins og að káfa á kynfærum barns.

Af þessum sökum finnst mér ég knúinn sem verjandi skjólstæðings míns að stíga fram og benda á nokkrar staðreyndir í málinu sem unnt er að sannreyna með því að lesa dóminn.

Í fyrsta lagi liggur fyrir að eina DNA úr skjólstæðingi mínum sem fannst á vettvangi var á aftanverðum buxnastreng brotaþola. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir að í opinberri umfjöllun um málið hafi verið talað um lífssýni úr ákærða í buxum brotaþola að þá var ekki um sæði að ræða heldur lífssýni (DNA) sem virðist hafa komið af höndum skjólstæðings míns eftir að hann hafi gripið í buxnastrenginn. Allar fullyrðingar um að skjólstæðingur minn hafi gert eitthvað meira en að taka í buxnastrenginn og sleppa honum síðan þurfa að byggjast á öðrum sönnunargögnum. Í þessu máli er þar ekki við annað að styðjast en framburð brotaþola. Eftirfarandi eru beinar tilvitnanir úr dómi héraðsdóms sem fjalla einmitt um þann framburð:

  •         „Í báðum skýrslum lýsti brotaþoli því hins vegar með nokkuð líkum hætti að ákærði hafi komið við líkama brotaþola og reynt að draga náttbuxur hans niður. Brotaþoli hafi þá vaknað, ákærði séð að hann var barn og farið í kjölfarið.“
  •         „Hann [skjólstæðingur minn] hafi síðan sagt: ,,ó, afsakið“ verið að ,,fyrirgefa sig“ og síðan labbað  út  og talað eins og hann væri blindfullur eða eitthvað.“
  •         „Brotaþoli  nefndi  óljóst  í  fyrri  skýrslu  sinni  að  maðurinn  hafi  haldið  að  brotaþoli  væri móðir brotaþola en í seinni skýrslunni tók hann það skýrt fram.“
  •         „Í  seinni skýrslunni  lýsti  brotaþoli  því  svo  að  ákærði  hafi  ætlað  að  fara  upp  í  rúm  til  mömmu brotaþola en farið til brotaþola og reynt að taka buxur hans niður sem hafi vaknað við það.“
  •         „Í fyrri skýrslu sinni sagði brotaþoli að maðurinn hefði „reynt að ríða mér“ en nánar aðspurður um hvað það fæli í sér lýsti hann því svo að maðurinn hefði verið að „setja typpið á mig og í mig og þú veist gera bara skrítna hluti við mig“. Inntur eftir því hvaða skrítnu hluti ákærði hafi gert svaraði brotaþoli „bara fullt þú veist setja typpið í munninn á mér og eitthvað“ en er hann var beðinn um nánari skýringar á því hvort typpið hefði farið í munninn neitaði hann því en sagði að „það er hægt að gera það þannig þú veist fólk gerir það.
  •         „Brotaþoli  gaf  tvær  skýrslur  fyrir  dómi  í  Barnahúsi  við  rannsókn  málsins.  Í  fyrri skýrslunni,  skömmu  eftir atvikið  sem  ákært  er  vegna,  lýsti  brotaþoli  því  m.a.  að  hann hafi  séð  eitthvað  hvítt  koma  úr  typpi  mannsins,  sem  hafi  farið  á  rúm  brotaþola,  en maðurinn  hafi  síðan  sett  það  á  bak  og  rass  brotaþola.  Yfirdýna  og sængurver  úr  rúmi brotaþola var tekið til rannsóknar en á þeim hlutum fannst ekki sæði og það fannst ekki heldur á náttfötum brotaþola né á honum sjálfum. Brotaþoli lýsti þessu þrátt fyrir að hann hafi sagt að það hafi verið mjög dimmt í herberginu og að hann hafi snúið baki í ákærða.“

Æskilegast er að þeir sem vilja móta sér skoðun á þessu máli lesi einfaldlega dóminn í heild sinni. Hefði til dæmis verið bragur á því verkefnastýra hjá Barnaheillum sem gaf viðtal um málið í sjónvarpsfréttatíma RÚV 17. apríl sl. (sjá einnig ruv.is) hefði gert það áður en hún lét hafa eftir sér að það væri „ómanneskjuleg krafa að frásögn barns af kynferðisbroti sé óaðfinnanleg“. Augljóst er af framangreindum dæmum úr framburði brotaþola og raunar mörgum fleiri dæmum að þar var langt því frá að fundið að því að frásögn hans væri ekki óaðfinnanleg. Slíkar fullyrðingar í fjölmiðlum eru í besta falli til þess fallnar að villa um fyrir fólki um niðurstöðu dómsins. Óaðfinnanlegur framburður brotaþola var alls ekki sá mælikvarði sem hinn fjölskipaði dómur héraðdóms miðaði við eins og ljóst er við lestur dómsins. Tvö atriði standa hér  upp úr:

1)      brotaþoli hefur uppi fullyrðingar um mjög alvarleg atriðið sem síðan reynast sannanlega ósannar.

Umdeilanlegt er hvort byggja megi sakfellingu á framburði brotaþola þegar svona háttar á varðandi önnur atriði sem ekki hafa verið beinlínis afsönnuð. Rétt er að hafa í huga að ef brotaþola hefði einfaldlega „trúað“ af dómstólnum og allt lagt til grundvallar sem hann sagði að þá hefði verið hægt að ákæra og dæma fyrir háttsemi sem búið er að sanna að gerðist ekki.

2)     Brotaþoli virðist sjálfur ekki telja skjólstæðing minn hafa ætlað að brjóta gegn barni heldur hafi hann einmitt farið um leið og hann hafi áttað sig á að um barn var að ræða.

Umdeilanlegt er hvort unnt sé að sakfella einstakling á þeim grundvelli að hann hafi haft ásetning til að brjóta gegn barni sem sjálft virðist einmitt telja að svo hafi ekki verið.

Skjólstæðingur minn áttar sig fyllilega á því að frumorsökin fyrir þeirri vanlíðan sem þetta mál hefur valdið öllum sem því tengjast er hans með því að hafa farið í ölæði inn á heimili fjölskyldu fyrrum samstarfskonu sinnar sem hann áleit vera vinkonu sína. Hann veit að hann er ekki í neinni aðstöðu til að skipta sér að því hvort, hversu mikið og hvernig fólk kýs að tjá sig um málið jafnvel þó málið sé viðkvæmt og talsvert af börnum sem því tengjast óbeint. Hins vegar hefur stöðug fjölmiðlaumfjöllun valdið því að ítrekað hafa líflátshótanir borist og heimilisfang fjölskyldu hans og nöfnum á öðrum fjölskyldumeðlimum hans meðan annars verið dreift á spjallþráðum við fréttir af málinu sem iðulega hafa komið upp eftir hin ítrekuðu viðtöl við foreldra brotaþola. Í þessu ljósi telur skjólstæðingur minn illskiljanlegt það sem fram kemur í dómnum um að vitni segist hafa farið í viðtöl í fjölmiðlum vegna þess að þau hafi viljað „stjórna umræðunni“ um málið og að þau hafi farið í Kastljósþátt til þess m.a. að biðja fólk um að fara varlega gagnvart sakborningum og þau vilji ekki að skjólstæðingi mínum verði gerður skaði. Þó svo foreldrarnir beri enga ábyrgð á hótunum annarra hafa umræddar hótanir þó nær eingöngu komið fram í tengslum við ítrekuð viðtöl við þau. Af þessum sökum er mikilvægt að umfjöllun um málið byggi á staðreyndum.

Oddgeir Einarsson hæstaréttarlögmaður

#bjarts #drengsins #fjölskyldu #gagnrýnir #lögmaður


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/20/helgi-bjartur-hjolar-fjolskyldu-drengsins/

📰 Aðrar fréttir

„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 1
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 1
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 2
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 2
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 2
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 2
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 2
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 3
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 3
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 3
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 3
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 4
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 3
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 4
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 3
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 3
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
📅 26.10.2026 👁️ 3
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi fors...
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var sí...
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál,“ segir Jasmina Vajzovic um færslu Sigfúsar Aðalsteinssonar í hópnum Ísland – Þvert á flokka þar sem han...
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
📅 26.10.2026 👁️ 3
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
A folded map rests on a terrace table as the morning light reaches its edge. Beyond the railing, the sea is still a soft strip of colour. For a travel...
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
Eyjólfur Ármannsson mun leggja fram breytingu á fyrirhugaðri breytingu á Loftbrú. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir 600 milljónum ...
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
📅 26.10.2026 👁️ 3
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
The next fortnight sees two elections on different continents. The outcomes will shape geopolitics and the global economy, writes James Landale
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
📅 26.10.2026 👁️ 3
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunart...
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
Norski áhrifavaldurinn Christian Brennhovd var í sumar sektaður um 120.000 norskar krónur, sem gera um 1,5 milljónir íslenskra króna, vegna ólöglegra ...
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
📅 26.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
Orðið á götunni er að gamanið sé tekið að kárna hjá meirihlutanum í Reykjavíkurborg. Ferillinn hingað til, sem raunar er ekki ýkja langur, er varðaður...
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
📅 26.10.2026 👁️ 3
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
„Við erum bara hér til að brjóta allt og bramla,“ svarar ungur maður þegar hann er spurður hvers vegna hann taki þátt í mótmælum í Frakklandi. Maðurin...
Chris Brown á skil­orði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Brown á skil­orði - Vísir
BBC greinir frá. Hinn meðákærði, raddþjálfi Browns og rapparinn Omololu Akinlolu eða HoodyBaby, var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm. Báði...
Temu ætlar að grípa til aðgerða gegn sölu á ólöglegum vörum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Temu ætlar að grípa til aðgerða gegn sölu á ólöglegum vörum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun kínversku netverslunarinnar sem ætlað er að bæta úr brotum á reglugerð ESB um st...
Chris Brown fær 8 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Brown fær 8 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm
Bandaríski söngvarinn Chris Brown fékk átta mánaða skilorðsbundinn dóm í dag í tengslum við slagsmál á næturklúbbi í Lundúnum fyrir þremur árum. Refsi...
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
Runólfur hefur gegnt stöðunni í tæp fimm ár og hefði upphaflegum skipunartíma hans lokið þann 1. mars næstkomandi. Í nýjum Spítalapúlsi Landspítalans ...