Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu - Vísir
Svo virðist sem betur hafi farið en á horfði þegar lítilli tveggja sæta flugvél hlekktist á við lendingu á Norðfjarðarflugvelli í dag og hvolfdi. Einn var í flugvélinni og slapp hann án meiðsla, samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.
Þar segir að slysið hafi orðið um klukkan hálf fjögur í dag.
Slysið og tildrög þess eru til rannsóknar hjá lögreglunni og Rannsóknarnefnd samgönguslysa.