Jarðboranir hf. hafa undirritað samning við Orkuveituna um borun á rannsóknarholu. Markmiðið er að finna nýjar leiðir til nýtingar á ofurheitum jarðhita. Holan verður sú fyrsta í þriðja áfanga rannsóknarverkefnis.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jarðborunum hf. sem stefna á að hefja borun á Nesjavöllum síðar á þessu ári.
„Verkefnið, sem gengur undir nafninu IDDP-3, er eitt metnaðarfyllsta rannsóknar- og þróunarverkefni sem ráðist hefur verið í,“ segir í tilkynningunni.
Nýtingin gæti umbylt allri orkuvinnslu
„Markmið þess er að nýta ofurheitan jarðhita, þar sem hiti og þrýstingur er mun hærri og meiri en í hefðbundnum vinnsluholum. Með því skilar hver hola fyrir sig margfalt meiri orku en nú er mögulegt og eykur þannig skilvirkni og sjálfbærni jarðhitavinnslu.“
Þegar hafa verið boraðar tvær djúpborunarholur sem gera fyrirtækinu kleift að nálgast þriðja áfangann með borun á Nesjavöllum með mikilvæga þekkingu í farteskinu, samkvæmt tilkynningu.
„Áhugi á ofurheitum jarðhita hefur aukist verulega á undanförnum árum, enda getur slík nýting umbylt allri orkuvinnslu, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi,“ er haft eftir Sveini Hannessyni, forstjóra Jarðborana, í tilkynningu.