Fyrirtækin sem sjá um gjaldtöku á einkareknum bílastæðum gætu fengið upplýsingar um handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða til að tryggja að þeir verði ekki rukkaðir í trássi við lög. Þetta er meðal þess sem ber á góma í áformum um lagasetningu sem var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrir helgi.
Lögum samkvæmt eiga handhafar svokallaðra P-skírteina að geta lagt gjaldfrjálst hvar sem er. Þetta hefur þó ekki alltaf verið virt og hafa hreyfihamlaðir bílstjórar stundum verið rukkaðir um stöðugjöld.
Í kynningu innviðaráðuneytisins á fyrirhugaðri lagasetningu segir að handhafar P-korta hafi gjarnan þurft að tilkynna komu sína fyrir fram eða óska eftir því að rukkun fyrir að leggja í stæði verði felld niður. Ráðuneytið segir að þetta skapi augljóst óhagræði fyrir fólk sem á rétt á að leggja gjaldfrjálst í stæði þó að almennt sé rukkað fyrir notkun þeirra.
Ráðuneytið segir að þeir sem rukka fyrir notkun bílastæðanna verði að tryggja að fólk fái notið réttar síns. Til að tryggja það þykir rétt að miðla til þeirra upplýsingum um handhafa stæðiskorta en þó þannig að slík miðlun samræmist persónuverndarlögum.