Lýst er eftir kólumbískri fjölskyldu á Íslandi á Facebook-hópnum Latinos en Islandia. Samkvæmt færslu í hópnum og tilkynningu sem fréttastofu barst segir að ekkert hafi spurst til fjölskyldunnar frá 28. júlí.
Í tilkynningu frá fjölskyldumeðlimum er óskað eftir hjálp almennings við leit þeirra en ekkert hefur spurst til þeirra Jeovany Martínez, Elisabet Martínez og Estefaníu Arboleda síðan þau komu til Íslands frá Madríd kvöldið 28. júlí. Þá segir að fjölskyldan hafi ekki skilað sér á hótelið sem þau hugðust dvelja á.
Ekki á borði lögreglu
Marce Guzman, frænka fjölskyldunnar, segir í færslu á Facebook að fjölskyldan hafi verið öll saman á ferðalagi um Evrópu. Þar segir einnig að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hafi ekki náðst samband við fjölskylduna. Guzman var seinast í sambandi við þau stuttu eftir lendingu og biðu þau þá eftir fari upp á hótel.
E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að enn sem komið er hafi málið ekki ratað á borð lögreglu.