Halla Bergþóra, sem sinnt hefur embættinu undanfarin ár, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl og var staða hennar auglýst í kjölfarið.
Í síðasta þætti Þjóðmála sem kom út á föstudaginn var embættið til umræðu. Þar sagðist Gísli Freyr Valdórsson þáttastjórnandi hafa heyrt að Grími Hergeirssyni, lögreglustjóra á Suðurlandi, hefði verið boðin staðan.
„Þetta er maður búinn að fá úr ýmsum áttum að Grími Hergeirssyni hafi verið boðið starfið en hafnað því,“ sagði Gísl Freyr í þættinum.
Grímur gaf lítið fyrir slíkt tal í samtali við fréttastofu.
En ætlarðu að sækja um starfið?
„Ég er ekki með nein sérstök áform um það,“ sagði Grímur og spurði fréttamann í kjölfarið léttur í bragði hvenær umsóknarfresturinn rynni út.
Grímur var á meðal fjögurra sem sóttu um embætti ríkislögreglustjóra í desember. Hinir voru Birgir Jónasson sem þá var settur fangelsismálastjóri, Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur, aðstoðarsaksóknari og staðgengill lögreglustjóra og Halla Bergþóra Björnsdóttir sem fékk starfið.
„Kemur í ljós“
Þá hefur Úlfar Lúðvíksson, fyrrum lögreglustjóri á Suðurnesjum, verið orðaður við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hann var sömuleiðis kátur þegar fréttastofa sló á þráðinn og spurði hvort hann ætlaði að sækja um stöðuna.
„Kemur í ljós,“ sagði Úlfar og gaf ekkert meira upp.
Umsóknafrestur rennur út þann 26. júní og hafa menn því nægan tíma til að velta málum fyrir sér.