Heilbrigðisráðuneytið hefur kynnt til umsagnar áform um frumvarp til heildarendurskoðunarinnar í samráðsgátt stjórnvalda. „Með frumvarpinu verða lagðar til ýmsar breytingar á lögunum í ljósi sjónarmiða um gæði og öryggi tæknifrjógvunarþjónustu, jafnréttis, réttar þeirra barna sem getin eru með gjafafrumum til þess að þekkja uppruna sinn og einföldunar regluverks,“ segir í fréttatilkynningu Stjórnarráðsins.Ein breytingin er að takmarka notkun kynfruma úr sama einstaklingi. Þannig sé hægt að draga úr hættu á of nánum skyldleika en vegna smæðar íslensku þjóðarinnar yrði kynfruma úr einum einstaklingi takmörkuð svo að úr verði börn í að hámarki tveimur fjölskyldum.Í dag eru nafnlausar gjafir kynfruma ekki óleyfilegar en telur ráðuneytið að endurskoða megi þær reglur. Börn sem getin eru úr slíkum kynfrumum hafi rétt á því að fá upplýsingar um líffræðilegan uppruna sinn.„Það er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að sífellt verða þekktir fleiri erfðasjúkdómar þar sem þörf er á að rekja þá meðal skyldra.“
Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar - Vísir