Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur fordæmir ummæli Runólfs Pálssonar, forstjóra Landspítalans, og stjórnar spítalans um hlutastörf lækna sem vinna bæði á spítalanum og í einkarekstri. Fundurinn vísar til ummæla í Spítalapúlsi, fréttum og í grein í Morgunblaðinu.
Runólfur sagði að á Landspítalanum væri mun hærra hlutfall lækna í hlutastarfi en gerðist á öðrum háskólasjúkrahúsum. Hann sagði að þetta kæmi niður á skipulagi, mönnun og þátttöku lækna í kennslu og vísindastarfi.
Í ályktun læknanna segir að ummæli hans og stjórnar séu órökstudd og segir að þau séu ámælisverð.