Aðstandendur Kristins Hauks Jóhannessonar, sem fannst látinn í Óshlíðinni milli Bolungarvíkur og Hnífsdals árið 1973, munu kynna ný gögn í málinu fyrir lögreglu með óskum um að sérfræðingar ríkislögreglustjóra taki þau til skoðunar.
Kristinn er sagður hafa farist af slysförum en atvikið var á sínum tíma rannsakað sem umferðarslys. Í aprílmánuði 2021 óskuðu nánustu ættingjar Kristins eftir því að málið yrði tekið upp á ný þar sem rannsókn málsins hefði verið ábótavant.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendunum.
Þá munu aðstandendur Kristins einnig óska eftir upplýsingum um á hvaða forsendum var ákveðið að grafa jarðneskar leifar Kristins upp þegar málið var endurupptekið árið 2022. Í október það sama ár ákvað lögreglustjórinn á Vestfjörðum að hætta rannsókninni og vísaði þá til þess að niðurstaða rannsóknar benti ekki til annars en að Kristinn hefði látist af afleiðingum umferðarslyss.
Í febrúar 2023 felldi ríkissaksóknari ákvörðun lögreglunnar á Vestfjörðum úr gildi og fyrirskipaði frekari rannsókn á málinu í annað skipti. Þeirri rannsókn var hætt árið 2024.
