Krummi kveður pabba sinn - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Krummi kveður pabba sinn - Vísir

Krummi kveður pabba sinn - Vísir

Björgvin var bráðkvaddur að heimili sínu fyrir viku síðan. Stórt skarð er höggið í íslenskt tónlistarlíf enda Björgvin verið atkvæðamikill á þeim vettvangi svo ekki sé meira sagt. Hann er „Röddin“ – ein helsta stjarna Íslands fyrr og síðar, þekktur fyrir að syngja lög sem hafa náð gríðarlegum vinsældum á Íslandi og víðar.

Fékk að prófa sig heima

Krummi skrifar færslu á Facebook í tilefni afmælisdags föður síns. Hann segir að það sé með ólýsanlegum sársauka, djúpri sorg og óendanlegum söknuði sem hann setjist niður og reyni að setja í orð það sem í raun sé ekki hægt að gera.

„Faðir minn, Björgvin Halldórsson, var talinn stórsöngvari á heimsmælikvarða og listamaður í fremstu röð. En fyrir mér var hann fyrst og fremst pabbi. Besti vinur minn. Maðurinn sem ég gat alltaf leitað til, sama hvað gekk á. Maðurinn sem hlustaði, leiðbeindi, hvatti og studdi en leyfði mér jafnframt að finna minn eigin takt, mína eigin rödd og minn eigin veg,“ skrifar Krummi.

Bylgjan kveður Bó - með einlægum þætti Ívars Guðmundssonar á sunnudag beint eftir hádegisfréttir á Bylgjunni. Ívar spilar brot úr viðtölum við Björgvin Halldórsson frá síðustu áratugum, spilar þekktustu lög hans og fer yfir ferilinn og líf Björgvins. Sögustund með meistaranum, full af hans frægustu frösum, persónulegum sögum og augnablik úr bransanum rifjuð upp. 

Hann rifjar upp að æska hans hafi verið mótuð af tónlist og sköpun. Heima hafi hljóðfæri oft legið út um allt, gítarar, hljómborð, píanó, munnhörpur, bassagítar, 4 track upptöku og fleira. „Og ég fékk að prófa mig áfram á þessu öllu. Hann hafði ótrúlega gaman af þessu, næstum því jafngaman af þessu og ég. Hann hló með mér, hvatti mig áfram og sýndi mér lítil trix og leiðir til að fikra sig áfram á hljóðfæri og tónlistinni. Þar var engin pressa, heldur leikur, forvitni og óþrjótandi ást á tónlistarsköpun eða einfaldlega að skapa eitthvað fallegt úr engu.“

„Eigum að leigja eina hausinn af“

Þá rifjar Krummi upp að kvikmyndir, bækur og ljóð hafi verið stór hluti af sambandi þeirra feðga. Þeir hafi oft setið saman og og horft á bíómyndir, bæði klassískar og nýjar.

„Ég man þetta ennþá vel frá því þegar ég var krakki, við tókum okkur stundum til og leigðum hryllingsmynd sem var bönnuð yngri en 16 ára, og hann sagði alltaf í gríni: “eigum að leigja eina hausinn af” Elskaði þann frasa. Með honum varð kvikmyndaáhorf og lestur ekki bara afþreying, heldur sameiginleg upplifun, samtöl og ferðalög inn í heim sagna og tilfinninga.“

Krummi hafi kynnst verkum og kvikmyndum í gegnum föður sinn eins og Apocalypse Now, The Godfather, Taxi Driver, The Deer Hunter og mörgum fleirum. Einnig ljóðabókum eftir Steinn Steinarr, Örn Arnarson, Einar Benediktsson og skáldsögum eftir John Steinbeck og Jack London. Þeir feðgar hafi einnig einnig verið mikið fyrir ævisögur og það hafi orðið hluti af hans listrænu mótun.

Krummi rifjar upp að húmor föður hans hafi verið einstakur, beittur, hlýr og oft óborganlegur. Pabbi hans hafi líka verið skapmikill,

Heilsan hafði áhrif

„Á síðari árum fór heilsu hans að hraka, og það hafði ekki góð áhrif á hann. Fætur hans voru orðnir illa farnir af stíflum í æðum og bólgum, og daglegar athafnir urðu sífellt þyngri. Eftir að hann datt illa og braut í sér mjöðmina fyrir tæpum tveimur árum varð hreyfigeta hans mun takmarkaðri og gangur erfiðari,“ skrifar Krummi.

„Hann fann líka fyrir áhrifum þess að hafa sungið af slíkum krafti í meira en 50 ár. Eftir áralanga notkun á röddinni fór að bera á sliti í raddböndum, sem hafði áhrif á það sem alltaf hafði verið hans stærsta tjáningarform, söngurinn. Þetta hafði mikil áhrif á hann og ljómi lífsneistans hafði dofnað. Hann tjáði mér að hann væri hræddur við að eldast og dauðann, að hann saknaði þess sárlega að vera í því líkamlega formi sem hann áður hafði haft og að ganga í gegnum það að sjá á eftir vinum sínum.. En á sama tíma var hann æðrulaus með einhvers konar ró gagnvart því sem ekki yrði breytt. Þessi blanda af söknuði og æðruleysi lýsir honum vel á þessum síðari árum.“

Feðgarnir á tónleikum.

Krummi segir sárt að vita til þess að pabbi hans muni ekki deila með honum næsta kafla, Krummi sé að fara að gefa út sína fyrstu sóló plötu í fullri lengd.

„Vínilplötu sem ég vildi svo innilega að hann myndi hlýða á og vera stoltur af. Mig langaði að sjá hann með hana í höndunum og vita að ég hefði gert rétt, ekki bara sem tónlistarmaður, heldur sem sonur sem lærði allt frá honum og móður minni. Hann var alltaf stoltur af mér, og sú tilhugsun að hann fái ekki að upplifa þennan áfanga skilur eftir sárt tómarúm.“

Sárt að geta ekki óskað pabba til hamingju

Krummi segist oft hugsa um lífið og dauðann og spyrja sig hvers vegna við þurfum að missa fólk sem við elskum. Kannski sé svarið það að þannig getum við lært að lifa til fulls, að elska og meta hverja einustu mínútu, að vera til staðar á meðan við getum.

„Í dag, 16. Apríl, á pabbi minn afmæli. Hann hefði verið 75 ára. Dagur sem áður var fylltur af ljúffengum mat, hlátri, tónlist, kertaljósum og hlýju, en ber nú með sér verulegan söknuð og þögn sem er erfitt er að lýsa. Það er sárt að geta ekki sagt honum til hamingju með daginn og knúsað hann og sjá brosið hans,“ skrifar Krummi.

„Ég kveð föður minn með hjarta sem er gjörsamlega brotið í þúsund mola, en fullt af þakklæti. Fullt af minningum, ást og arfleifð sem lifir áfram í mér, í tónlist, í lífinu og í öllu því sem hann kenndi mér. Ég vona að ég geti með tímanum gert hjarta mitt heilt á ný og læra að lifa með þessu tómi og þessum mikla missi. En í dag kveiki ég á kerti fyrir hann, minnist hans með mikilli ást og þakklæti og held í allar þær minningar sem gera daginn enn hans, þrátt fyrir allt.“

Hann segir orð fá því varla lýst hversu þakklátur hann sé fyrir allar kveðjurnar, heimsóknirnar, persónulegu skilaboðin, símtölin, styrkinn og ástina frá fjölskyldu, vinum og landsmönnum vegna fráfalls pabba hans. 

„Þetta er alveg ótrúlegt og hreyfir sterkt við mér. Hjartnæmar ástarþakkir til ykkar allra,“ skrifar Krummi sem lýkur færslu sinni á ljóði sem hann tileinkar föður sínum.

Enginn kyrrð í huga manns

Hálfmánalaga lifnaður

Meinhæðið sálarstríð

Skera sundur eðlishvöt

En undir niðri kviknar ljós

Sem lærir hægt að anda aftur

Minningar milda sárin djúpu

Og myrkrið víkur, skref fyrir skref

Í hjartanu býr enn rödd

Sem hvíslar styrk í þögninni

Og þótt hann sé farinn héðan

Lifir kærleikurinn áfram í mér

Bylgjan kveður Bó - með einlægum þætti Ívars Guðmundssonar á sunnudag beint eftir hádegisfréttir á Bylgjunni. Ívar spilar brot úr viðtölum við Björgvin Halldórsson frá síðustu áratugum, spilar þekktustu lög hans og fer yfir ferilinn og líf Björgvins. Sögustund með meistaranum, full af hans frægustu frösum, persónulegum sögum og augnablik úr bransanum rifjuð upp. 

#krummi #kveður #pabba #sinn #vísir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262870027d/krummi-kvedur-pabba-sinn

📰 Aðrar fréttir

Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar Fréttin22. október 2026Erlent, Mannréttindi, Trúm...
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll Fréttin22. október 2026Bólusetningar, Erlent...
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfð...
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
📅 22.10.2026 👁️ 1
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Öflugur jarðskjálfti af stærð 7...
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
📅 22.10.2026 👁️ 2
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi...
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafræ...
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem G...
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðr...
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
📅 22.10.2026 👁️ 2
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, gæti þurft að bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni sem hann sjálfur boðaði til að rannsaka pakis...
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
📅 22.10.2026 👁️ 2
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
Pentulive er komið í loftið í sjötta sinn hjá finnska ríkissjónvarpinu Yle og viðbúið er að áhorfsmet falli. Yfir sex milljónir hafa þegar horft á Pen...
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“ Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Júrí Úshakov. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Xi Ji...
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 3
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 3
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 4
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 4
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 4
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1

Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 3
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 4
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
📅 22.10.2026 👁️ 4
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
Some cities including Lyon and Nice have banned all protests, and the French president said only authorised demos would be allowed.
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 4
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 4
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 4
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.