BBC greinir frá þessu, en atvikið átti sér stað í febrúarmánuði síðastliðnum.
Fjölskylda barnsins, sem var þá átján mánaða gamalt, hafði gert lögreglu viðvart um að það hafi fundist í sundlaug, með andlitið snúandi niður.
Viðbragðsaðilar fóru á vettvang og reyndu endurlífgunartilraunir, og fluttu barnið svo á sjúkrahús þar sem það var svo úrskurðað látið, um klukkutíma eftir komuna þangað.
Um fimm klukkutímum síðar kom hið gagnstæða í ljós: barnið var á lífi. Það var flutt á annað sjúkrahús, og hefur síðan verið útskrifað af þeim spítala.
Til skoðunar er að saksækja foreldrana fyrir vanrækslu á barni sínu, en fram kemur að sterk lykt af marijúana hafi verið á heimili þeirra þegar lögregla kom á vettvang. Mögulega hafi barnið verið án eftirlits við laugina.