Burnham, sem er einnig fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fékk 55% atkvæða og níuþúsund atkvæðum meira en hans helsti keppinautur, Robert Kenyon úr flokki Nigels Farage, Reform. Kjör hins 56 ára gamla Burnhams þýðir að nú aukast líkurnar á því að hann skori núverandi formann flokksins, Keir Starmer forsætisráðherra á hólm og sækist eftir formannsembættinu.
Til að það megi gerast þarf hann stuðning frá áttatíu og einum þingmanni Verkamannaflokksins en Burnham er talinn líklegastur til að taka við af Starmer, sem verður æ valtari í sessi með hverri vikunni sem líður.
Andy Burnham hefur skotist upp á stjörnuhiminn breskra stjórnmála síðustu misserin en hann þótti standa sig einstaklega vel í starfi borgarstjóra Manchester og naut hann mikilla vinsælda langt út fyrir raðir verkamannaflokksins. Þar fékk hann viðurnefnið „King of the North,“ eða „konungur norðursins“.