Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi í uppsveitum Árnessýslu laugardaginn 4. júlí lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtudaginn 9. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi.
Málið vakti mikla athygli um síðustu helgi þegar karlmaður fannst látinn í sama tjaldi en konan var flutt lífshættulega slösuð á sjúkrahús.
Maður fannst látinn í tjaldi á Suðurlandi – grunur um gaseitrun
Lögregla hefur áður greint frá því að grunur sé um að gaseitrun vegna hitara í tjaldinu hafi valdið slysinu, en rannsókn málsins stendur enn yfir.
Í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurlandi í dag segir:
„Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi í uppsveitum Árnessýslu þann 4. júlí, lést fimmtudaginn 9. júlí á gjörgæslu Landspítalans. Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Suðurlandi.“
Ekki hefur verið greint frá frekari niðurstöðum rannsóknarinnar að svo stöddu.