Ungur maður hafði valið fallegan stað í Laguna Beach í Kaliforníu til þess að biðja kærustu sinnar. Stundin átti hins vegar eftir að verða ógleymanleg fyrir allt aðrar sakir því að miðaldra kona spjó kynþáttahatri yfir parið og hefur myndband af atvikinu farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum.Dagblaðið Los Angeles Times greinir frá þessu.
Kona full af kynþáttahatri truflaði bónorð – „Farið aftur til Mexíkó“