Á stóra skjánum birtast Hollywood-leikarar okkur í ýmsum hlutverkum, þeir eru draumaprinsinn í rómantísku gamanmyndinni, hetjan í hasarmyndinni, elskulegi lúðinn í grínmyndinni og svo framvegis. Við þekkjum þá frá rauðum dreglum verðlaunahátíða, úr slúðurfréttum um ástarlífið, glamúrinn og frægðina. En ólíkt hergyðjunni Aþenu sem stökk í fullum herklæðum úr höfði Seifs með miklu ópi, birtast leikarar ekki skyndilega í pressuðum jakkafötum með milljón dala bros fyrir framan myndavélarnar.
Áður en frægðin bankaði á dyrnar klæddust þessir leikarar herklæðum